Eins og bæjarbúar urðu varir við gengu 9. bekkingar í hús í síðustu viku og söfnuðu áheitum fyrir námsmaraþon. Ávinningurinn af maraþoninu var tvíþættur. Annars vegar til þess að undirbúa nemendur fyrir samræmd próf sem að standa þeim fyrir dyrum í næstu viku og hins vegar að safna fyrir vorferð í Þórsmörk sem farin verður í maí.
Maraþonið gekk einstaklega vel og höfðu nemendur bæði gagn og gaman af.
Nemendur í 9.bekk þakka bæjarbúum fyrir stuðninginn og góðar viðtökur.