Árlega tekur 7.bekkur þátt í Storu Upplestrarkeppninni. Keppnin hefur verið haldin í fjölda ára og er orðin fastur liði í skólastarfi árgangsins.
Undanfarnar vikur hafa nemendur 7.bekkja undirbúið sig fyrir upplestrarkeppnina í sínum bekkjum. Fyrir skömmu var haldin keppni innan bekkjanna þar sem voru valdir aðilar til að taka þátt í skólakeppninni sem fram fór í dag.
Það var virkilega gaman að sjá krakkana lesa textana sína í salnum í dag og augljóst að þau voru búin að æfa sig vel og vandlega fyrir lesturinn.
Þeir sem báru sigur úr býtum og keppa því fyrir hönd Grunnskóla Grindavíkur í Stóru upplestrarkeppninni eru Dagmar Kristín Helgadóttir, Thelma Rut Þorvaldsdóttir, Björn Atli Hyldahl Guðmundsson og Róbert Árnason verður varamaður.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá keppninni í morgun.