Fimmtudaginn 27.febrúar fengum við góða heimsókn frá nemendum og kennurum í Crystal Spring skólanum í San Fransisco. Þetta voru níu nemendur og tveir kennarar og voru þeir með nemendum okkar í kennslustund í 8.bekk. Heimsóknin gekk mjög vel og kynntu nemendur okkar verkefni sem þau hafa verið að vinna í ensku, gestirnir sögðu stuttlega frá sínum heimkynnum og svo var bara almennt spjall milli nemenda um lífið á Íslandi og í San Fransisco. Einnig dönsuðu nemendur tik-tok dansinn saman. Að kennslustund lokinni fóru gestirnir með nemendum okkar í hádegismat.
Þetta var mjög vel heppnuð heimsókn og gestirnir ánægðir og þakka kærlega fyrir vinalegar móttökur.
Þeir sem hafa áhuga á að lesa sér til um ævintýri hópsins í Íslandsferð sinni, geta kíkt á bloggið þeirra https://mspandatrip.blogspot.com/ þar er m.a. fjallað um heimsókn þeirra í Grunnskóla Grindavíkur.