Sú skemmtilega hefð hefur verið við lýði í nokkur ár hér á Ásabrautinni að nemendur koma með veitingar fyrir hvert annað á bónda- og konudaginn. Stelpurnar sjá um veitingar fyrir bekkinn sinn á bóndadaginn og strákarnir endurgjalda síðan greiðann á konudaginn.
Það var því nóg um að vera í dag þegar bóndadagurinn gekk í garð. Í hverri stofunni á fætur annarri mátti sjá glæsileg hlaðborð sem stelpur bekkjanna höfðu séð um. Bekkirnir gæddu sér síðan saman á kræsingunum og létu vel af.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá því í dag.