Á miðvikudaginn fóru nemendur 8.bekkja í Kvikuna þar sem búið var að setja upp skemmtilegar vinnustofur í samstarfi við Listaháskólann.
Nemendum var skipt niður á fjórar stöðvar sem bakkalárnemendur í Listaháskólanum voru búin að undirbúa. Þar tókust þau á við ýmis konar skemmtileg verkefni eins og leiklist, vefnað, leir og tálgun auk áhugaverðar vinnustofu um tilfinningar þar sem rætt var um þær og svo áttu nemendur að teikna mynd.
Vinnustofurnar heppnuðust vel en allir nemendur í 8.bekk tóku þátt og fengu hrós frá skipuleggjendum fyrir vinnusemi og dugnað.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá þessum skemmtilega viðburði.