Við Grunnskóla Grindavíkur er laus staða grunnskólakennara á yngsta stigi. Umsóknarfrestur er til 23. júní en ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2019.
Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar. Sjá nánar á heimasíðu skólans.
Við leitum að einstaklingi með réttindi til kennslu í grunnskóla sem er metnaðarfullur og góður í mannlegum samskiptum, með skipulagshæfileika, er sveigjanlegur og tilbúinn að leita nýrra leiða í skólastarfi.
Skólinn vinnur í anda Uppeldi til ábyrgðar.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240 Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í síma 420-1200.