Nemendur 5.bekkja skelltu sér í vorferð í vikunni ásamt kennurunum, þeim Rannveigu, Matthildi og Gullý. Ferðinni var heitið á Þjóðminjasafnið þar sem nemendur fengu leiðsögn um sýningu sem þar er í gangi auk þess sem rölt var um miðbæinn og komið við á skemmtilegum stöðum til að skoða.
Ferðin heppnaðist vel og voru krakkarnir ánægðir í lok hennar. Hér fyrir neðan má sjá myndir úr ferðinni.