Krakkarnir í 10.bekk skelltu sér út í vikunni og týndu rusl. Verkefnið er samstarfsverkefni skólans og áhaldahúss bæjarins. Bærinn styrkir nemendur vegna rútukostnaðar í vorferð. Nemendur stóðu sig vel við hreinsun meðfram Grindavíkurvegi og hluta Reykjanesvegar og afraksturinn má sjá á palli bílsins sem safnaði saman í lok hreinsunar.
Skólinn vill koma á framfæri þökkum til Sigga og starfsmönnum í áhaldahúsinu fyrir samvinnuna.