Það var mikið um dýrðir á árshátíð nemenda í 7.-10.bekk sem haldin var á þriðjudaginn. Nemendur komu þá fram á sýningum þar sem þau sýndu afrakstur æfinga og undirbúnings síðustu vikna. Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg og hlaut góðar undirtektir gesta.
Um kvöldið var svo árshátíðarball þar sem nemendur borðuðu saman góðan mat og þeir félagar í ClubDub héldu svo uppi fjörinu fram eftir kvöldi.