Árshátíð miðstigs hjá Grunnskóla Grindavíkur fór fram í dag og var að venju mikið um að vera. Nemendum var skipt upp í tvo hópa og á fyrri sýningunni kl. 9:00 voru það nemendur 5.G, 6.SJ og hluti 4.bekkjar sem sýndu sýningar auk þess sem nemendur frá tónlistarskólanum voru með tónlistaratriði.
Á seinni sýningunni voru það síðan krakkarnir í 5.M, 5.R, 6.SH og hluti 4.bekkjar sem hélt uppi fjörinu. Það var þéttsetinn bekkurinn af áhorfendum og að sýningu lokinni var boðið upp á skúffuköku og kanilsnúða sem nemendur höfðu sjálfir bakað í heimilisfræði dagana á undan.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá sýningunum í dag.
Birta Eiríksdóttir spilaði fallega á trompetinn.
Jón Breki og Rakel úr 6.SJ sáu um að kynna dagskrána á fyrri sýningunni.
Krakkarnir í 4.bekk spiluðu á hljóðfæri við söguna um krókódílinn undir dyggri stjórn Sigríðar Maríu.
5.G sýndi skólaskaup og dansaði svo fyrir áhorfendur.
Áhorfendur fylgdust með af áhuga.
Nemendur í 4.bekk sýndu leikrit um Rauðhettu og Litlu gulu hænuna.
Halldóra Rún í 6.SJ lék á gítar.
Nemendur í 6.SJ sýndu leikritið "Grindó got talent"
Á seinni sýningunni sýndu nemendur í 4.bekk skemmtilegt tónlistaratriði.
Ísabella og Kent úr 6.SK voru kynnar á seinni sýningunni.
5.M sýndi myndband af hæfileikakeppni bekkjarins og hélt svo skemmtilega tískusýningu.
Seinni sýningin hjá 4.bekk var sömuleiðis vel heppnuð og hlaut góðar undirtektir.
Krakkarnir þakka hér áhorfendum fyrir undirtektirnar.
5.R sýndi myndband um Flossið sem hefur heltekið bekkinn og dansaði svo Fortnite-dansa í diskóljósum.
6.SK lauk síðan dagskránni með myndböndum þar sem meðal annars var fjallað um einelti.
Þegar sýningunum lauk var boðið upp á skúffukökur og kanilsnúða sem nemendur sjálfir höfðu bakað.