Litlu jólin voru haldin í Grunnskóla Grindavíkur í gær. Að venju var mikið fjör og krakkarnir skemmtu sér vel. Allir bekkir byrjuðu með sínum umsjónarkennara þar sem lesnar voru jólasögur, skipst á pökkum og ýmislegt fleira gert. Að því loknu var dansað í kringum jólatréð áður en nemendur fengu jólafrí. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá jólaskemmtun miðstigs.