Fimmtudaginn 1. nóvember er samskiptadagur í Grunnskóla Grindavíkur. Nemendur mæta þá í viðtöl hjá umsjónarkennara ásamt foreldrum/ forráðamönnum en engin kennsla fer fram þann daginn. Við minnum foreldra á að bóka viðtal hjá umsjónarkennara í gegnum Mentor.
Skólaselið verður opið og býðst börnum í Skólaseli að koma frá klukkan 8.00. Gjaldið fyrir morguninn er 1.700. kr. ( tímagjaldið er 340 kr. ) Morgunmatur kostar 230 kr og hádegismatur 450 kr. Samtals 2.380 kr. Allir geta mætt á sínum skráða tíma frá klukkan eitt, án þess að láta vita.
Fyrirfram skráning vegna tímans frá kl. 8:00 – 13:00 er nauðsynleg vegna mönnunar starfsfólks. Vinsamlegast látið vita í síðasta lagi um hádegi miðvikudaginn 31. okt. Ekki er í boði að koma án skráningar. Vinsamlegast sendið tölvupóst á sigurbjorg@grindavik.is.