Á föstudaginn héldu allir bekkir á miðstigi sameiginlegt bókakaffi í tilefni loka lesskilningsátaksins. Nemendur hafa farið afskaplega duglegir að lesa bækur og vinna verkefni úr þeim og voru ánægð með að breyta til frá lestrarátakinu sem vanalega fer fram í maí.
Nemendur tóku þátt í umræðum undir stjórn kennara um bók sem þau höfðu lesið og skiptust á skoðunum sín á milli. Eftir umræður hittust allir í salnum og gæddu sér á skúffuköku og kakói áður en haldið var út í ýmislegt föndur undir stjórn list- og verkgreinakennara.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá þessum skemmtilega degi.