Í gær fór fram árshátíð unglingastigs þar sem nemendur komu saman og skemmtu sér. Um morguninn var sýning á sal þar sem fjölmörg glæsileg atriði voru sýnd og um kvöldið var svo dansleikur þar sem meðal annars Sturla Atlas kom fram við góðar undirtektir.
Dagskráin í gær hófst á því að kynnarnir, þær Katrín Lilja Ármannsdóttir og Thelma Rún Ingvadóttir, buðu gesti velkomna. Aníta Sif Kristjánsdóttir, formaður nemendaráðs, fór því næst yfir dagskrá ráðsins í vetur sem hefur verið fjölbreytt og skemmtileg.
Þá var komið að skemmtiatriðunum. Nemendur Tónlistarskólans, Bragi Snær Einarsson, Fernandó Már Þórólfsson, Oliwia Ruth og Jón Emil Karlsson voru með tónlistaatriði en þau sungu og spiluðu lagið Perfect sem Ed Sheeran hefur gert víðfrægt.
Viktor Örn Hjálmarsson hefur slegið í gegn að undanförnu í rappinu og er meðal annars kominn í úrslit Samfés. Hann rappaði frumsamið lag sem heitir Væl og gerði það af stakri prýði.
Að lokum var svo komið að leiksýningu sem nemendur hafa unnið að undanfarnar vikur undir stjórn Aldísar Davids leikara og leikstjóra. Leiksýningin fjallaði um Oliver Twist og hlaut góðar undirtektir. Um 25 nemendur koma að uppsetningu leikritsins, leikarar, tæknimenn, hljóðmenn og ljósamenn. Auk þess hefur Halla Kristín textílkennari aðstoðað við gerð búninga og Dóra myndlistarkennari við leikmynd ásamt Diljá í 8.bekk sem einnig hefur aðstoðað við gerð leikmyndar.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá skemmtuninni síðan í gærmorgun.