Í gær fór fram skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar. Þar lásu nemendur texta úr bókinni Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason, ljóð eftir Steinunni Sigurðardóttur og svo sjálfvalið ljóð.
Verkefnið Stóra upplestrarkeppnin hóf göngu sína veturinn 1996, næstu árin fjölgaði þátttakendum og í dag eru nánast allir skólar á landinu sem taka þátt. Keppnin hefst á degi íslenskar tungu þann 16. nóvember ár hvert og lýkur í mars með lokahátíð. Í upphafi fá allir 7. bekkingar þjálfun í framsögn og upplestri. Nemendur taka þátt í bekkjarkeppni og eru bestu upplesararnir valdir til að taka þátt í skólakeppninni. Sigurvegarar þeirrar keppni verða fulltrúar skólans á lokahátíð sem fram fer í Stóru-Vogaskóla þann 14. mars. Þar taka einnig þátt nemendur frá Gerðaskóla og Stóru-Vogaskóla.
Þeir nemendur sem keppa fyrir hönd skólans að þessu sinni eru: Eydís Steinþórsdóttir, Stefanía Ósk Jóakimsdóttir, Hjörtur Jónas Klemensson og Róbert Þórhallsson. Varamaður er Hilmir Rafn Rafnsson.