Skólastefna Grindavíkurbæjar var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 10. mars 2010. Skólastefnunni er ætlað að taka til allra þátta í uppeldis- og skólastarfi bæjarins. Markmiðið er að skapa framtíðarsýn í málaflokknum til næstu þriggja ára og vera málefnalegur grundvöllur að umfjöllun um skólastarf í sveitarfélaginu.
Skólastefna Grindavíkurbæjar tekur til leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, æskulýðs- og tómstundarstarfs og starfsemi Skólaskrifstofu. Skipaður var átta manna stýrihópur til að vinna að endurskoðun stefnunnar.
Helstu áhersluatriði stefnunnar :
> Í Grindavík verði veitt heildstæð grunnmenntun á öllum skólastigum, allt frá leikskóla til framhaldsskóla
> Jafnræði ríki í aðgengi að námi og tengdri þjónustu
> Einstaklingsmiðað nám og fjölbreyttir kennsluhættir
> Aukið samstarf allra skóla og skólastiga sín á milli og við nærsamfélagið
> Uppeldisstefna skólanna byggi á umhyggju fyrir öllu lífi, samúð og kærleika sem stuðlar að umburðarlyndi, friði og samfélagi án ofbeldis
> Samþætta þekkingu, lífsgildi og almennan heilbrigðan lífsstíl í námi barna
> Virk tengsl og sameiginleg ábyrgð heimila og skóla
> Starfsfólk upplifi starfsánægju, fái hvatningu og tækifæri til þess að auka færni sína
> Nemendum og starfsfólki verði tryggt heilnæmt starfsumhverfi og búnað sem samræmist þörfum viðkomandi skólastarfs
> Lögð verði áhersla á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar
> Nýtt verði sérstaða nánasta umhverfis til kennslu

Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
