Sjóarinn síkáti 2010

 

 

Sjóarinn síkáti í Grindavík

 

Dagskrá

Hverfaskipting: 

Appelsínugula hverfið (bátar)
Liðsstjóri: Jón Berg Reynisson jonbr@centrum.is
Bláa hverfið (krabbar)
Liðsstjóri: Vilhelm Arason, villiara@simnet.is
Græna hverfið (skeljar)
Liðsstjóri: Linda Sylvía Hallgrímsdóttir, bb81@simnet.is 
Rauða hverfið (fiskar)
Liðsstjóri: Fríða Egilsdóttir freda@grindavik.is

Umsjón:
Grindavíkurbær
í samstarfi við Sjómanna-
og vélstjórafélag Grindavíkur.

Framkvæmd:
Kristinn Reimarsson
frístunda- og menningarfulltrúi.
Sími 420 1120. 

Þorsteinn Gunnarsson
upplýsinga- og þróunarfulltrúi.
Sími 420 1122 / 69 69 234

Sjóarinn síkáti
2010
Sjómanna- og
fjölskylduskemmtun
4.-6. júní

Dagskrá Sjóarans síkáta 2010

Myndasíður:

Appelsínugula hverfið
Bláa hverfið (krabbar)
Græna hverfið (skeljar)
Rauða hverfið (fiskar)

Netfang hátíðarinnar: sjoarinnsikati@grindavik.is

 

 

 

 

 

Sjómanna- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík er ein stærsta bæjarhátíð landsins, haldin um Sjómannadagshelgina, 4.-6. júní. 

 

 

 

Dagskráin verður glæsileg líkt og undanfarin ár og verður mikið lagt upp úr því að virkja bæjarbúa til þátttöku. Dagskráin er glæsileg:

Landslið skemmtikrafta:
Mannakorn - Ingó og Veðurguðirnir - Í Svörtum fötum - Dúkkulísurnar - Hvanndalsbræður - Friðrik Ómar og Jogvan - Hera Björk - Dalton.
Fyrir börnin:
Skoppa og Skrítla - Íþróttaálfurinn og Solla stirða - Brúðubíllinn - John töframaður - Sirkus Sóley  - Fjórhjólaferðir - Hestateyming - Leiktæki - Andlitsmálun - Paintball - Skemmtisigling - Dorgveiðikeppni Sjóræninginn - Jón Sparrow - Svabbi sjóari - Útivatnsrennibraut - Sjópulsa.
Ýmislegt fleira:
Sterkasti maður á Íslandi - Íslandsmeistarakeppni í netaviðgerðum - Handverksmarkaður - Ratleikur - Sýningar - Skrúðganga - Kappróður - Koddaslagur - Kararóður.

Sjóarinn síkáti hefur fest sig í sessi sem ein skemmtilegasta og fjölbreyttasta bæjarhátíð landsins.

Hér má sjá lesa allt um fjölskylduleikinn Hver býr hér?

Hér sérðu svo allar fréttir sem tengjast Sjóaranum síkáta 2010:


Sjóarinn síkáti - Ingi Anton og Rakel Rut unnu Kerlingahlaupiđ

Veitingastaðurinn Kanturinn stóð fyrir Kerlingahlaupi á Sjóaranum síkáta í fyrsta sinn en fyrirmyndin að þessu móti er sótt til Finnlands. Fjögur pör tóku þátt í þrautabraut þar sem karlinn bar konuna á baki og í hjólbörum. Sigurvegarar urðu Ingi Anton Jónsson og Rakel Rut Þorteinsdóttir og fengu þau vegleg verðlaun.

>> MEIRA
Sjóarinn síkáti - Ingi Anton og Rakel Rut unnu Kerlingahlaupiđ

Sjóarinn síkáti - Grindavík vann stakkasundiđ

Sundmót Sjóarans síkáta fór fram í sundlaug Grindavíkur á laugardaginn. Þátttaka var góð að þessu sinni en gestir komu frá 7 liðum alls staðar af landinu, meðal annars frá Reyðarfirði. Grindvíkingar unnu stakkasundið í fyrsta sinn en stakkasundsbikarinn er sá eftirsóttasti á mótinu. 

>> MEIRA
Sjóarinn síkáti - Grindavík vann stakkasundiđ

Sjóarinn síkáti - Myndband frá sunnudeginum

Sjómannadagurinn í Grindavík á Sjóaranum síkáta 2011 var viðburðarríkur og skemmtilegur. Hér má sjá myndband frá Sjómannadeginum og þá aðallega frá heiðrunum dagsins og dorgveiðikeppninni.

>> MEIRA
Sjóarinn síkáti - Myndband frá sunnudeginum

Sjóarinn síkáti - Myndband frá stórskemmtilegum koddaslag

Koddaslagur er ómissandi þáttur á Sjómannadaginn og að þessu sinni mættu nokkrir vaskir sveinar til leiks. Einn bardaginn vakti mikla athygli enda stórskemmtilegur og vel tekist á en þar mættust Björn Lúkas Haraldsson, Norðurlandameistari drengja í júdó, og Vilhelm Arason liðsstjóri í Bláa hverfinu. Þar sýndi Björn ótrúlega fimi eftir að hann missti koddann og dró svo Vilhelm niður með sér í fallinu. Myndband frá bardaganum má sjá hér að neðan.

>> MEIRA
Sjóarinn síkáti - Myndband frá stórskemmtilegum koddaslag

Halldór Ingi vann Sjóara síkátamótiđ í golfi

Það var ágætis fjöldi sem tók þátt í Sjóaranum Síkáta open sem Þorbjörn ehf styrkti. Sjötíu og sjö keppendur voru skráðir til leiks en 74 luku keppni. Í fyrsta sæti með forgjöf varð Halldór Ingi Lúðvíksson á 39 punktum líkt og Bergvin Friðberg Ólafarson en með fleiri punkta á síðari 9 holunum. Lúðvík hlýtur að launum einstaklings árskort í Bláa Lónið ásamt 10 kg af fiskafurðum frá Þorbirninum.

>> MEIRA
Halldór Ingi vann Sjóara síkátamótiđ í golfi

ELDRI FRÉTTIR

Bæjarfulltrúar

Meirihlutasamstarf í bæjarstjórn er með Framsókn og Sjálfstæðisflokki.