
Saltfisksetur Íslands - upplýsingamiðstöð ferðamanna:
Hafnargata 12 a
240 Grindavík
Sími 420 1190 & 660 7307.
saltfisksetur@saltfisksetur.is
www.saltfisksetur.is
Opnunartími: Kl. 11-18, alla daga, allan ársins hring.
Aðal upplýsingamiðstöðin í Grindavík er í Saltfisksetrinu og veitir hún almennar upplýsingar fyrir ferðamenn. Hún er opin allan ársins hring.
Grindavíkurbær rekur upplýsingamiðstöðina í samvinnu við Saltfisksetrið. Forstöðumaður Saltfisksetursins er Óskar Sævarsson.
Aðstæður hafa hagað því þannig að ekkert byggðasafn er staðsett í Grindavík. Saltfisksetur Íslands er eina safnið sem er í Grindavík og er jafnframt miðpunktur margvíslegrar menningarstarfsemi heimamanna og að auki aðdráttarafl og upplýsingarmiðstöð fyrir ferðamenn sem sækja staðinn heim. Safnið var opnað í september 2002 en Grindavíkurbær ásamt fyrirtæki í bænum lögðust saman á árarnar að reisa þetta glæsilega safn.
Þegar leið á 18. öldina, og þilskip tóku að leysa áraskipin af hólmi, varð saltfiskur aðalútflutningsvara Íslendinga. Fram að því höfðu vaðmál og skreið verið undirstaða utanríkisverslunar. Með tilkomu togaranna varð saltfiskverkun í raun að stóriðju og saltfiskur hefur æ síðan skipt verulegu máli fyrir afkomu þjóðarbúsins. Grindvíkingar hafa löngu verið drjúgir við saltfiskinn og sýning um sögu verkunar og sölu á salfiski og þýðingu hans fyrir þjóðarbúið í gegn um tíðina á því vel heima í Grindavík.
Sýningin í Saltfisksetri Íslands er því afar forvitnileg fyrir íslenska og erlenda ferðamenn, fróðleg fyrir skólafólk, sem getur hér kynnt sér mikilvægasta atvinnuveginn, og ánægjuleg fyrir hinn almenna Íslending sem fer í helgarbíltúr með fjölskylduna.
Gerður var verksamningur milli Ístaks h/f og Saltfisksetursins um byggingu sýningarskála. Sýningarskálinn er 650 m2 að grunnfleti og sýningarsvæði á tveimur gólfum alls 510 m2. Hönnuðir sýningarskálans eru Yrki s/f arkitektar Ásdís H. Ágústdóttir og Sólveig Berg Björnsdóttir en Björn G. Björnsson sýningarhönnuður sá um hönnun og uppsetningu sýningarinnar.
Saga saltfisksins er sögð með stórum myndum, hnitmiðuðum texta og fáum en lýsandi munum. Gínur koma í staðinn fyrir fólk í leikmyndinni. Tæknin kemur við sögu þar sem notast er við skjái á gólfum, sýningartjald á vegg og skjáir og DVD spilarar tengdir við. Mörkuð er ákveðin leið í gegnum sýninguna og sagan þannig rakin í tímaröð.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)






