Lesiđ af fullum krafti
Lesiđ af fullum krafti

Lestrarsprettur í Hópsskóla er núna í fullum gangi. Lestraráhugi nemenda er mikill og einkennir skólastarfið þessa dagana. Gaman er að fylgjast með einbeittum lestrarhestum fylla af kappi út tákn fyrir hverja lesna bók. 

Þessi tákn sækjum við í bækur Guðrúnar Helgadóttur en nemendur fá á þessum vikum að kynnast verkum hennar. Allir þeir sem kynnst hafa þeim bræðrum Jóni Oddi og Jóni Bjarna ættu að kannast við köttinn Sófus, ferðatöskuna hans afa og bíllinn hennar ömmu Dreka. 
Síðastliðinn föstudag söfnuðust allir nemendur saman á sal og horfðu á leikritið Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur. Nemendur fylgdust með af athygli allan tímann og voru greinilega sáttir með sýninguna en allir klöppuðu henni lof í lófa í lokin.

Næstkomandi föstudag fáum við svo höfunda bókarinnar Auður og gamla tréð í heimsókn til okkar en þá lýkur lestrarprettinum formlega hjá okkur.
Við erum ánægð að sjá hversu vel foreldrar taka þátt í þessu með börnum sínum.
Höldum áfram að vera dugleg.......lestur er bestur :)

FJÖLDI NEMENDA
Í byrjun skólaársins voru 468 nemendur í skólanum. Stúlkur í skólanum eru 216 og piltarnir eru 252. Skipting nemenda í árganga er með eftirfarandi hætti: 1.-3. bekkur í Hópsskóla 140 nemendur 65 stúlkur og 75 drengir. Í Grunnskólanum er 4.-10.bekkur alls 328 nemendur 151 stúlka og 177 drengir.
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG