Borið hefur töluvert á því að undanförnu að nemendur hafa verið að koma með tæki í skólann sem innihalda síma, myndavélar og tölvuleiki. Stjórnendur skólans óska eftir því að foreldrar nemenda í 1. - 7.bekk aðstoði starfsfólk við að framfylgja reglum sem segja til um að notkun á slíkum tækjum sé ekki leyfilegt nema í sérstökum undantekningartilfellum þar sem kennarar gefa leyfi.
Í skólareglum segir:
Notkun farsíma er ekki leyfð í skólanum, á lóð skólans, í íþróttahúsi og sundlaug og annars staðar þar sem nemendur eru á vegum skólans.
Símar sem nemendur verða uppvísir að því að nota í skólanum verða settir í geymslu hjá skólaritara og óskað verður eftir að foreldrar nálgist þá þar.
Notkun annarra tækja svo sem ferðageislaspilara og fartölva sem truflað geta virkni og vinnu nemenda
eru ekki leyfð. Kennarar geta þó veitt undanþágu frá þessari reglu.
Stjórnendur Grunnskóla Grindavíkur.




