Skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur
Skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur

Staða skólastjóra við Grunnskóla Grindavíkur er laus til umsóknar. Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í góðu samstarfi við aðra starfsmenn skólans.

Starfsemin skal einkennast af fjölbreytni, sveigjanleika og víðsýni, þar sem tekið er tillit til mismunandi þarfa, áhuga og getu nemenda.

Skólinn er heildstæður, einsetinn grunnskóli, með um 460 nemendur í tveimur starfsstöðvum. Starfsmenn eru 70, þar af 43 kennarar. Hlutfall fagmenntaðra kennara er 100%. Grindavíkurbær rekur skóla- og félagsþjónustu sem sinnir stoðþjónustu fyrir Grunnskóla Grindavíkur.

Í Grunnskóla Grindavíkur er starfað eftir Uppbyggingarstefnunni. Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til
fyrirmyndar. Skólinn hefur nýlega gengist undir úttekt á vegum menntamálaráðuneytisins og munu niðurstöður liggja fyrir í febrúar.

Grindavíkurbær er um 2.850 íbúa samfélag í næsta nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Í Grindavík er lögð
áherslu á fjölskylduvænt umhverfi, íþróttastarf og heilsueflingu í skóla og leikskóla.
Veffang skóla http://www.grindavik.is/grunnskolinn og er bent á starfsáætlun 2011 - 2012 varðandi frekari
upplýsingar um skólann.

Starfssvið:
Skólastjóri ber faglega- og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans, stjórnar honum og hefur forgöngu um mótun faglegrar stefnu.

Menntunarkröfur
• Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða æskileg.

Hæfniskröfur
• Frumkvæði og samstarfsvilji.
• Góðir skipulagshæfileikar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
• Áhugi og reynsla til að leiða þróunarstarf.
• Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
• Reynsla af störfum á sviði stjórnunar og reksturs er æskileg.
• Fjölbreytt reynsla af kennslu og vinnu með börnum og unglingum.

Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, stjórnunarreynslu og hver þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi skólastjóra. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjanda um starfið og hvernig hann sér starfsemi Grunnskóla Grindavíkur þróast undir sinni stjórn.

Æskilegt er að skólastjóri geti hafið störf 1. maí n.k. og undirbúið nýtt skólaár.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna skólastjórafélags Íslands.

Nánari upplýsingar veitir Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs í síma 420-1100.
Pálmi Ingólfsson, starfandi skólastjóri í síma 420-1150.
Umsóknir skulu berast bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar. 

Víkurbraut 62, 240 Grindavík í síðasta lagi 13. febrúar næstkomandi. Hægt er að senda umsóknir á
netfangið grindavik@grindavik.is

FJÖLDI NEMENDA
Í byrjun skólaársins voru 468 nemendur í skólanum. Stúlkur í skólanum eru 216 og piltarnir eru 252. Skipting nemenda í árganga er með eftirfarandi hætti: 1.-3. bekkur í Hópsskóla 140 nemendur 65 stúlkur og 75 drengir. Í Grunnskólanum er 4.-10.bekkur alls 328 nemendur 151 stúlka og 177 drengir.
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG