Kynning á nýrri reglugerđ um ábyrgđ og skyldur ađila skólasamfélagsins í grunnskólum
Kynning á nýrri reglugerđ um ábyrgđ og skyldur ađila skólasamfélagsins í grunnskólum

Þriðjudaginn 17. janúar nk. munu Suðurnesjavaktin, FFGÍR (Foreldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ) og fræðsluskrifstofur á Suðurnesjum standa fyrir kynningu á nýrri reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum. 

Guðni Olgeirsson sérfræðingur í menntamálaráðaneytinu mun kynna og svara spurningum um reglugerðina en hún tekur til fjölmargra atriða er varða grunnskólastarfið. Lögð er sérstök áhersla á skólabrag, agamál, eineltismál, ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í þeim efnum og málsmeðferð í skólum þegar misbrestur verður á tilteknum atriðum. Reglugerðin er afar mikilvægur áfangi en síðustu misseri hefur verið unnið að gerð heildstæðrar reglugerðar í samráði við hagsmunaaðila og er í anda þeirrar stefnumótunar sem hefur farið fram um velferð nemenda. 

Kynningin verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja klukkan 17.30 - 18.30 og eru starfsmenn skólanna, foreldrar, nemendur og aðrir hvattir til þess að koma.

FJÖLDI NEMENDA
Í byrjun skólaársins voru 468 nemendur í skólanum. Stúlkur í skólanum eru 216 og piltarnir eru 252. Skipting nemenda í árganga er með eftirfarandi hætti: 1.-3. bekkur í Hópsskóla 140 nemendur 65 stúlkur og 75 drengir. Í Grunnskólanum er 4.-10.bekkur alls 328 nemendur 151 stúlka og 177 drengir.
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG