Meginmarkmið forvarna í Grindavík er heilbrigði og hamingja barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra. Til að það takist, þarf markvissa og góða samvinnu meðal þeirra sem vinna að málefnum barna, ungmenna og fjölskyldum þeirra.
Á undanförnum árum hefur verið unnið markvisst að því að skapa jákvætt samfélag fyrir börn og ungmenni í Grindavík. Við höfum öfluga íþróttahreyfingu og fjölbreytt tómstundaframboð þannig að flestir ættu að finna sér eitthvað við hæfi. Foreldrar og forráðamenn hafa í flestum tilfellum tekið vel í þessa vinnu og lagt sitt af mörkum til að tryggja börnum sínum öruggt samfélag til að alast upp í t.d. með þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi og nú síðast með þátttöku í foreldrarölti. Samkvæmt tölulegum upplýsingum frá lögreglunni eru afskipti af ungmennum í sögulegu lágmarki. Unglingadrykkja er hverfandi og í ljósi nýafstaðinnar jólahátíðar þar sem flest fór hátíðlega fram vill Forvarnarteymi Grindavíkur koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem tekið hafa þátt í því að skapa fjölskylduvænt samfélag í Grindavík og þar eru foreldrar/forráðamenn fremstir í flokki.
Höldum áfram á þessari braut og verum vakandi yfir velferð okkar allra.
Virðum lögboðin útivistartíma.
Leyfum ekki eftirlitslaus partý.
Ræðum við börnin okkar og setjum skýrar reglur.
Höldum vel utan um okkar nánasta umhverfi og sköpum jákvætt andrúmsloft.
Horfumst í augu við þá staðreynd að samfélagið sem við búum í tekur mið af því sem hver og einn leggur til þess og höfum það jákvætt.
Með von um áframhaldandi gott samstarf
Forvarnarteymi Grindavíkurbæjar.
Mynd: Frá haustgöngu grunnskólans




