Líf og fjör á ţrettándagleđinni
Líf og fjör á ţrettándagleđinni

Þrettándagleði Grindavíkurbæjar var haldin í dag í frábæru veðri og með nýju sniði. Eins og áratuga hefð er fyrir í Grindavík klæddu krakkarnir sig upp og gengu í hús og sníktu sælgæti og var því líf og fjör í bænum. En síðdegis var svo dagskrá í íþróttahúsinu sem tókst ljómandi vel og mættu nokkur hundruð manns til að fylgjast með dagskránni. Mæltist greinilega vel fyrir að hafa skemmtidagskrána innandyra.

Þar var skemmtilegt dansatriði frá fimleikadeild. Páll Jóhannesson og Margrét Erla Þorláksdóttir voru í hlutverkum álfakóngs og drottningar og tóku nokkur þrettándalög með glæsibrag. Nemendur frá Dansskóla Hörpu sýndu dans ársins og þá var Matthías Grindvík Guðmundsson, Grindvíkingur ársins 2011, verðlaunaður eins og lesa má nánar um hér. Þá voru úrslitin í búningakeppninni tilkynnt, eins og lesa má nánar um hér og að síðustu komu tveir jólasveinar í heimsókn við miklar vinsældir yngri kynslóðarinnar.

Að lokinni dagskrá í íþróttahúsinu gengu svo gestir fylktu liði niður að Kviku, auðlinda- og menningarhúsi Grindavíkur, þar sem kyndilberar frá unglingadeildinni Hafbjörgu voru í broddi fylkingar. Þar tók svo við glæsileg flugeldasýning í boði Grindavíkurbæjar.

FJÖLDI NEMENDA
Í byrjun skólaársins voru 468 nemendur í skólanum. Stúlkur í skólanum eru 216 og piltarnir eru 252. Skipting nemenda í árganga er með eftirfarandi hætti: 1.-3. bekkur í Hópsskóla 140 nemendur 65 stúlkur og 75 drengir. Í Grunnskólanum er 4.-10.bekkur alls 328 nemendur 151 stúlka og 177 drengir.
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG