Glćsileg ţrettándagleđi á laugardaginn
Glćsileg ţrettándagleđi á laugardaginn

Vegna óhagstæðrar veðurspár hefur árlegri þrettándagleði verið frestað til laugardagsins 7. janúar 2012.
Dagskráin hefur aldrei verið veglegri og er eftirfarandi:

Kl. 13:30 - 16:30 Börn ganga í hús og sníkja nammi.

Kl. 16:30 Andlitsmálun í anddyri íþróttahússins - skráning í búningakeppnina. Keppnin verður þrískipt, leikskólabörn, 1. - 4. bekkur og 5. - 7. bekkur. 

Kl. 17:00 Dagskrá í íþróttahúsi:
Atriði frá fimleikadeild
Álfakóngur og álfadrottning syngja
Dans ársins - nemendur frá Dansskóla Hörpu sýna
Útnefning á Grindvíking ársins
Úrslit úr búningakeppni
Jólasveinar koma í heimsókn

Kl. 17:30 - 18:00 Grímuball - allir taka þátt.

Kl. 18:00 Gengið fylktu liði niður að Kviku, auðlinda- og menningarhúsi Grindavíkur - kyndilberar frá unglingadeildinni Hafbjörgu.

Kl. 18:15 Glæsileg flugeldasýning í boði Grindavíkurbæjar.
 
Kaffi- og eða sjoppusala í íþróttahúsinu á vegum 8. flokks í körfuknattleik. Allur ágóði rennur í ferðasjóð.

ATH: þeim tilmælum er beint til foreldra, að sú hefð, að börn og unglingar gangi í hús og sníki sælgæti verði framkvæmd á laugardag en ekki föstudaginn 6. janúar.

ATH: Breyting á dagsetningu er gerð í samráði við Björgunarsveitina Þorbjörn.

Þrettándagleðin er samstarfsverkefni Frístunda- og menningarnefndar Grindavíkurbæjar og
Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar.

Grindavíkurbær óskar öllum bæjarbúum velfarnaðar á árinu 2012.

 

FJÖLDI NEMENDA
Í byrjun skólaársins voru 468 nemendur í skólanum. Stúlkur í skólanum eru 216 og piltarnir eru 252. Skipting nemenda í árganga er með eftirfarandi hætti: 1.-3. bekkur í Hópsskóla 140 nemendur 65 stúlkur og 75 drengir. Í Grunnskólanum er 4.-10.bekkur alls 328 nemendur 151 stúlka og 177 drengir.
 




 
 
www.grindavik.is

GAMLA HEIMASÍÐA GRUNNSKÓLANS

Enskuvefur GG