Þar sem veðurspá fyrir þrettándagleðina á föstudaginn er ekki nógu hagstæð eins og staðan er núna, verður ákveðið í hádeginu á morgun, fimmtudag, hvenær hún verður haldin. Hugsanlega verður skemmtidagskrá frestað til laugardags og munu hátíðarhöldin að mestu leyti fara fram í íþróttahúsinu.
Grindvíkingar eru beðnir að fylgjast vel með upplýsingum hér á heimasíðunni upp úr hádegi á morgun.




