Rauði krossinn

Aðalfundur Grindavíkurdeildar RKÍ

Aðalfundur Grindavíkurdeildar RKÍ verður haldinn þriðjudaginn 28. febrúar 2012 kl. 18:00 í húsi deildarinnar að Hafnargötu 13. Nýjir og gamlir félagar velkomnir. Dagskrá aðalfundar: 

>> MEIRA
Aðalfundur Grindavíkurdeildar RKÍ

112 dagurinn í Grindavík - Námskeið í skyndihjálp og björgun úr vatni

Í tilefni af 112 deginum stóð Neyðarvarnanefnd Grindavíkurdeildar Rauða krossins fyrir fræðslu í sundlauginni í Grindavík á laugardeginum frá kl. 11:00 -13:00. Magnús Már Jakobsson formaður neyðarvarnanefndarinnar, sundþjálfari og margreyndur öryggisvörður kenndi björgun úr vatni og viðbrögð við drukknun. 

>> MEIRA
112 dagurinn í Grindavík - Námskeið í skyndihjálp og björgun úr vatni

Námskeið í skyndihjálp í sundlauginni

Í tilefni af 112 deginum næsta laugardag mun Magnús Már Jakobsson sundþjálfari og margreyndur öryggisvörður kenna skyndihjálp, viðbrögð við drukknum, í sundlauginni á laugardaginn frá kl. 11-13. Jafnframt kennir hann skyndihjálp á staðnum. Þetta er í umsjá Grindavíkurdeildar Rauða krossins.

>> MEIRA
Námskeið í skyndihjálp í sundlauginni

Skemmtilegt og fræðandi námskeið í sálrænum stuðningi

Markviss undirbúningur hefur verið í gangi fyrir flugslysaæfinguna á Keflavíkurflugvelli 12. nóvember nk og hafa Suðurnesjadeild og Grindavíkurdeild staðið saman að námskeiðum í fjöldahjálp, meðferð tetrastöðva og síðastliðinn laugardag héldu deildirnar sameiginlegt námskeið í sálrænum stuðningi. 

>> MEIRA
Skemmtilegt og fræðandi námskeið í sálrænum stuðningi

Rauðakrossvikan - starf Grindavíkurdeildar

Kynning á starfsemi Rauða krossins er aðal tilgangur Rauðakrossvikunnar og býður Grindavíkurdeild í því tilefni upp á fræðslu, kynningu og söng í verslunarmiðstöð bæjarins í dag og frítt námskeið í sálrænum stuðningi í húsnæði deildarinnar á morgun. Hér að neðan er stutt ágrip á þeim helstu verkefnum sem eru í gangi hjá deildinni.

>> MEIRA
Rauðakrossvikan - starf Grindavíkurdeildar

Rauða kross vikan - Kynning og námskeið

Rauða kross vikan stendur yfir 17- 24. október. Grindavíkurdeild RKÍ verður með kynningu á starfinu í Verslunarmiðstöðinni föstudaginn 21. október milli kl. 15:00 og 18:00. Einnig verður boðið upp á ókeypis námskeið í sálrænum stuðningi að Hafnargötu 13, laugardaginn 22. október kl. 10:00-12:00. Skráning á námskeiðið verður á kynningunni.

>> MEIRA
Rauða kross vikan - Kynning og námskeið

Rauði krossinn leitar að garni

Rauði krossinn leitar eftir alls konar garni. Grindvíkingar eru hvattir til þess að athuga hvort ekki liggi einhvers staðar garnafgangar eða eitthvað sem ekki hefur verið klárað. Rauði krossinn hirðir allt fyrir prjónakonurnar sínar sem eru að prjóna peysur, húfur, sokka og vettlinga á smábörn fyrir neyðarhjálp í Hvíta Rússlandi og Afríku, allt er nýtilegt.

>> MEIRA
Rauði krossinn leitar að garni

Hlutaveltur fyrir Rauða krossinn

Grindavíkurkrakkar eru duglegir að halda hlutaveltur og gefa ágóðann til Rauða kross deildarinnar í bænum. Hér eru myndir af tveimur hópum sem héldu hlutaveltur í vor og fóru svo á bókasafnið þar sem tekið er við hlutaveltukrökkum.

>> MEIRA
Hlutaveltur fyrir Rauða krossinn

Mjög vel heppnað fræðslukvöld um fjöldahjálparstöð

Neyðarvarnarnefnd Grindavíkurdeildar Rauða kross Íslands stóð fyrir fræðslukvöldi um opnun fjöldahjálparstöðva á miðvikudagskvöldið í Hópsskóla. Jón Brynjar Birgisson, verkefnisstjóri neyðarvarna hjá landsskrifstofu Rauða kross Íslands hélt mjög góðan fyrirlestur um opnun og starfsemi innan fjöldahjálparstöðva.

>> MEIRA
Mjög vel heppnað fræðslukvöld um fjöldahjálparstöð

Gáfu hlutaveltuágóða til Rauða krossins

Þessir krakkar komu færandi hendi á dögunum en þau stóðu fyrir hlutaveltu og gáfu ágóðann af hlutaveltu til Rauða krossins í Grindavík. Alls var upphæðin 1.964 kr. Þessir duglegu krakkar heita Jón Alexander, Jón Grímsson, Nói Heimisson og Aníta Ósk Arnardóttir.

>> MEIRA
Gáfu hlutaveltuágóða til Rauða krossins
Bæjarfulltrúar

Meirihlutasamstarf í bæjarstjórn er með Framsókn og Sjálfstæðisflokki.