
Páll Valur Björnsson er bæjarfulltrúi fyrir Samfylkingu síðan 2010.
Netfang: pallvalur@grindavik.is
Heimasíða: http://www.samgrind.blogspot.com/
Sími: 426 7786 og 663 7786.
Páll Valur er ekki kominn með fasta viðtalstíma en fólki er frjálst að hafa samband við hann hvenær sem er, bæði með því að hringja eða senda tölvupóst.
Bakgrunnur:
Páll Valur er sonur Björns Pálssonar frá Vopnafirði og Katrínar Maríu Valsdóttur frá Reykjavík og er fæddur í Reykjavík þann 9. júli 1962 en ólst upp austur á Vopnafirði. Kom fyrst til Grindavíkur árið 1981 á vertíð en hefur búið hér í bæ frá 1987 fyrir utan eitt og hálft ár þegar fjölskyldan bjó í Sonderborg Danmörku. Hann hefur unnið við margvísleg störf bæði til sjós og lands en lengst af vann hann hjá Fiskmarkaði Suðurnesja. Hann hefur haft yfirumsjón með Vinnuskóla Grindavíkur síðustu ár. Páll Valur lauk námi frá Háskólabrú Keilis frumgreinadeild að Ásbrú Keflavíkurflugvelli vorið 2008 og stundar grunnskólakennaranám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og stefnir á að ljúka því vorið 2011.
Fjölskylda:
Eiginkona Páls Vals er Hulda Jóhannsdóttir leikskólastjóri og eru börn þeirra Ólöf Helga og Björn Valur.
Áhugamál:
Helstu áhugamál Páls eru velferðarmál og að byggja upp samfélag þar sem öllum geti liðið vel saman jafnt í starfi sem í leik. Fjölskyldan skipar stóran sess í lífi Páls og eins eru íþróttir og þá sérstaklega íþróttir í Grindavík mikið áhugamál hjá honum.
Til heimilis: Suðurvör 13, 240 Grindavík.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
