Málefni eldri borgara

Félagsstarf eldri borgara og öryrkja 2011-2012:

Fimmtudaginn 8. september var tekin í gagnið ný aðstaða fyrir eldri borgara í Grindavík. Aðstaðan er á neðri hæð í Víðihlíð og hefur hlotið nafnið Miðgarður. Umsjón með starfinu í Miðgarði hefur Stefanía Sigríður Jónsdóttir forstöðumaður Miðgarðs. Símanúmer í Miðgarði er 426 8014 .
Alla virka daga er hægt að kíkja í heimsókn frá 8.00 til 16.00, fá kaffi, lesa blöðin, spjalla, tefla, frír aðgangur er að tölvum, ofl. Unnið er í því að koma upp billjardborði.
Eftirfarandi frístundastarf verður í boði fyrir eldri borgara (60+) og öryrkja í Grindavík á komandi haustmánuðum:
• Almenn handavinna hefst mánudaginn 12. september og verður á eftirtöldum tímum: 
Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 er hægt að mæta í almenna handavinnu. Prjón, útsaum, hekla og fl. Athugið að leiðsögn verður ekki alltaf til staðar.
• Keramik verður á mánudögum milli kl. 09:00 og 12:00. 
Postulín verður á þriðjudögum milli kl. 09:00 - 12:00 og 13:00 - 15:30. 
• Á fimmtudögum í vetur milli kl. 13:00 - 16:00 verður boðið upp á hin ýmsu námskeið t.d. gler, leir ofl. og verður það auglýst nánar síðar.
• Áfram verður boðið upp á tíma í almennri líkamsrækt í Orkubúinu, Hafnargötu 28, og eru þeir tímar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 09:30 - 11:00. Þessir tímar hafa verið mjög vinsælir og hafa allir gott af því að hreyfa sig og auka við þol og þrek, svo ekki sé minnst á betri andlega líðan. Umsjón með þessum tímum hefur Ásdís Sigurðardóttir íþróttakennari. Þessir tímar eru fyrir 67 ára og eldri auk öryrkja. Eru þeir sem hafa hug á því að mæta í þessa tíma beðnir um að hringja í Orkubúið í síma 426 9899 og skrá sig. Að hreyfingu lokinni er upplagt að koma við í Miðgarði og fá sér kaffisopa og spjalla.
Fyrsti tími verður þriðjudaginn 13. sept.
• Fyrir hádegi á miðvikudögum (09:00 - 11:45) verður boðið upp á námskeið í útskurði. Kennt verður í aðstöðu handverksfólks að Skólabraut (gamla slökkvistöðin) og leiðbeinandi Jón Adolf Steinólfsson. Kostnaður við námskeiðið er enginn en þátttakendur greiða efniskostnað. Hægt verður að fá lánuð útskurðarjárn en kostur er að eiga slíkt. 
Fyrsti tími verður 21. september. Námskeiðið stendur yfir í 8 vikur. Tekið er við skráningu í Miðgarði í síma 426 8014 .
• Á fimmtudögum frá kl. 14:00 er spilað í safnaðarheimili kirkjunnar. 
Annan hvern miðvikudag kl. 10:00 kemur Sr. Elínborg í heimsókn og spjallar við gesti og gangandi. Fyrsta skipti 14. september.
• Annan miðvikudag í hverjum mánuði kl. 14:00 er spilað bingó í Miðgarði. Fyrsta skipti 13. september.
• Þriðja miðvikudag í hverjum mánuði kl. 13:30 er spiluð félagsvist í Miðgarði. Fyrsta skipti 21. september. 
• Á mánudögum kl. 10:15 verður boðið upp á boccia í íþróttahúsinu.
• Fyrsta og fjórða miðvikudag í hverjum mánuði kl. 15:00 - 16:00 er dans í Miðgarði. Fyrsta skipti 28. september
• Einnig bendum við á að á fimmtudagskvöldum kl. 20:00 er spiluð félagsvist í „Framsóknarhúsinu" Víkurbraut.
• Frá og með mánudeginum 26. september geta þeir sem vilja nýtt sér það að ganga inni í fjölnota íþróttahúsinu, Hópinu. Opnunartími er frá kl. 06:30 - 12:00 alla virka daga. Gestabók verður í húsinu og eru þeir sem nýta sér þetta tilboð beðnir um að skrá komur sínar í húsið.
Bæjaryfirvöld hvetja alla eldri borgara til að nýta sér þau tilboð sem boðið er upp á og fjölmenna í félagsstarfið. Því fleiri sem mæta því öflugra verður starfið.

Allar nánari upplýsingar veitir Stefanía Sigríður Jónsdóttir, í síma 426 8014 eða 660 7320.

Félag eldri borgara
Félag eldri borgara í Grindavík er deild í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum (FES). Félagið sér um tvær skemmtanir á árinu; vorfagnað fyrir alla eldri borgara á Suðurnesjum og svo aðventugleði fyrir eldri borgara í Grindavík. Einnig er farið í skipulagðar ferðir.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 
Víðihlíð - hjúkrunardeild aldraðra Austurvegi 5 

Sími 426 – 7600. Fax 426 – 7610 
Hjúrunarforstjóri: Edda Bára Sigurbjörnsdóttir edda@hss.is

Í vesturenda Víðihlíðar rekur Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hjúkrunardeild. Deildin var opnuð haustið 1992 og eru þar pláss fyrir 25 vistmenn.  

Læknir Heilsugæslustöðvar Suðurnesja í Grindavík sinnir hjúkrunardeildinni. Boðið er uppá sjúkraþjálfun x2 í viku. Í Víðihlíð er rekið þvottahús og þar eru einkaföt vistmanna þvegin.

Félagsleg heimaþjónusta 
Megin markmið félagslegrar heimaþjónustu er að styðja fólk til sjálfsbjargar, efla sjálfstraust þess og sjálfsvirðingu og rjúfa félagslega einangrun. Aldraðir og öryrkjar eiga kost á félagslegri heimaþjónustu. Þörfin fyrir aðstoð er metin í hverju tilviki fyrir sig.

Dagvist aldraðra 
Dagvist aldraðra er með aðsetur í Víðihlíð við Austurveg 5 í Grindavík. Þjónustuþegi greiðir daggjald sem ákvarðað er í reglugerð ár hvert en innifalið í gjaldinu er flutningur til og frá dagvist, ásamt fullu fæði. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður.

Íbúðir aldraðra í Víðihlíð 
Grindavíkurbær á 12 íbúðir í Víðihlíð við Austurveg nr. 5 í Grindavík. Úthlutun íbúðanna er á hendi félagsmálaráðs en skilyrði fyrir úthlutun eru þau að umsækjandi sé búsettur í Grindavík og hafi náð 70 ára aldri. Þá er stuðst við félagslegt og heilsufarslegt mat við úthlutun íbúðanna en matið annast hjúkrunarfræðingar. Umsækjendur greiða fyrir íbúðarrétt í upphafi en greiða svo leigu sem breytist í samræmi við neysluverðsvísitölu. Innifalið í leigu er rafmagn og hiti ásamt þeirri þjónustu sem veitt er íbúum hússins. Þegar íbúðinni er skilað fæst íbúðarrétturinn endurgreiddur samkvæmt reglum þar um.

Deildarstjóri öldrunarþjónustu
Stefanía S. Jónsdóttir, sími 426 8014.