Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar, er foreldranámskeið fyrir foreldra 0-7 ára barna. Námskeiðið verður haldið í fundarsal bæjarstjórnar að Víkurbraut 62, efri hæð, í alls fjögur skipti. Kennt verður á miðvikudögum kl. 16:30-18:30 dagana 15., 22. og 29. nóvember og 6. desember.
Þátttökugjald er kr. 3000 fyrir fjölskyldu Innifalin eru námskeiðsgögn og Uppeldisbókin.
Upplýsingar og skráning: ingamaria@grindavik.is
Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig er hægt að:
- Koma í veg fyrir hegðunarerfiðleika
- Hjálpa börnum að þróa með sér öryggi, sjálfstæði og jákvæðni
- Auka eigin styrkleika og færni í foreldrahlutverkinu
- Nota aga á jákvæðan og árangursríkan hátt
- Kenna börnum æskilega hegðun
-Takast á við venjuleg vandamál í uppeldi
Leiðbeinendur: Sigurlína Jónasdóttir leikskólaráðgjafi og sérkennari og Ingibjörg María Guðmundsdóttir sálfræðingur