
Stamphólsvegi 1, 24 Grindavík
Sími 426 9998
krokur@skolar.is
http://krokur.skolar.is/
Leikskólastjóri: Hulda Jónsdóttir, krokur@skolar.is
Aðstoðarleikskólastjóri: Bylgja Kristín Héðinsdóttir bylgja.hedinsdottir@skolar.is
Sækja um leikskóladvöl: http://krokur.skolar.is/Skolaplass/
Leikskólinn var opnaður 5. febrúar 2001 og er sjálfstætt starfandi skóli af Skólum ehf, sem er með þjónustusamning við Grindavíkurbæ. Á Króki gilda í meginþáttum sömu reglur og í öðrum leikskólum Grindavíkurbæjar og fylgjum við sömu gjaldskrá. Árið 2003 varð skólinn Heilsuleikskóli, annar í röðinni á eftir Urðarhóli sem er upphafsskóli stefnunnar sem hefur náð töluverðri útbreiðslu á Íslandi.
Leikskólinn er fyrir börn frá 18 mánaða aldri til 6 ára og er aldurskiptur þannig að 18 mánaða - 3ja ára eru í yngri helmingi og 3ja - 6 ára eru í eldri helmingi. Boðið er upp á sveigjanlegan vistunartíma.
Á Krók eru fjórar leikstofur og hér geta dvalið 105 börn samtímis. Gulanes og Rauðasel er fyrir yngri börnin og Grænahlíð og Bláaberg fyrir eldri börnin.
Í febrúar 2008 á 7 ára afmæli skólans steig skólinn 7. og síðasta skrefið í leið sinni að bættri umhverfisstefnu og fékk afhentan Grænfánann, alþjóðlega viðurkenningu fyrir öflugt umhverfis- og náttúruverndarstarf.
Foreldrafélagið:
Sveinn Þór Steingrímsson formaður, sveinn@grindavik.is
Foreldrafélagið var stofnað um leið og Krókur hóf starfsemi.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
