Kristín María Birgisdóttir (G)

Kristín María Birgisdóttir er bæjarfulltrúi fyrir Lista Grindvíkinga síðan 2010.
Netfang: kristinmaria@grindavik.is

Bakgrunnur:
Fæddist í Reykjavík 17. apríl 1980 og ólst upp í Grindavík. Stúdent af viðskipta- og hagfræðibraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja vorið 2001. Útskrifaðist með B.A. próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands vorið 2007. Var samhliða náminu í Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta og sat í Stúdentaráði. Var formaður lánasjóðsnefndar ráðsins og varamaður í stjórn LÍN. Ritstýrði Íslensku leiðinni árið 2005 sem er fræðirit stjórnmálafræðinema. Vann sem fréttamaður hjá Fréttastofu útvarpsins frá 2005-2007. Vann sumarið 2008 fyrir Gunnar Helga Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Var fréttamaður á Stöð 2 sumarið 2009.
Lauk kennsluréttindanámi frá Háskólanum á Akureyri núna í júní og mun ljúka meistaraprófi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands næsta vor.
Er umsjónakennari 5. bekkjar í Grunnskóla Grindavíkur.

Áhugamál:
Stjórnmál fyrst og fremst. Námið hefur tekið mikinn tíma hingað til en stefnan er sett á að grípa í golfkylfur í sumar. Mögulega er sú baktería í uppsiglingu.

Til heimilis: Dalbraut 3, 240 Grindavík.

Bæjarfulltrúar

Meirihlutasamstarf í bæjarstjórn er með Framsókn og Sjálfstæðisflokki.