Uppskeruhátíđ eftir sumarlesturinn

Bókasafn Grindavíkur hélt uppskeruhátíð eftir sumarlesturinn á alþjóðlegum degi læsis, þann 8.september, s.l.
43 krakkar skráðu sig, en 29 þeirra skiluðu inn lesnum bókum. Alls voru lesnar 40.416 blaðsíður - en það voru bækur, syrpur og blöð.
Mestu lestrarhestarnir voru í eldra hópi (9-12) Silja Rós Viðarsdóttir,Stephanie Júlía Þórólfsdóttir og Guðfinna Björt Þórdísardóttir. Í yngri hópnum (6-9 ára) voru Lestrarhestarnir þau Fernandó Már Þórólfsson, Katrín Lilja Ármannsdóttir og Vilberg Elí Dagbjartsson.
Leitað var til veitinga- og verslunaraðila hér í bæ um vinninga og þökkum við þeim kærlega fyrir stuðninginn. Krakkarnir fengu Pizzuveislu fyrir 4 frá MammaMía, hamborgarveislu fyrir 2 á Salthúsinu og ísveislu fyrir 2 í Skeifunni (1.-2. og 3.vinningur, báðir hópar).
Happdrættisvinningana fengu svo Fernandó Már og Ásdís Marín Kristjánsdóttir, en þeir voru Grindavíkurhúfur og svitabönd frá Grindavíkurbæ. Aðrir þátttakendur fengu viðurkenningarskjöl fyrir að vera með. Kex og djús var svo í boði bókasafnsins. Myndirnar eru af vinningshöfum og fleiru frá uppskeruhátíðinni.
Til hamingju vinningshafar og takk fyrir að vera með krakkar.

Lestrarhestur

 

>> MEIRA
Uppskeruhátíđ eftir sumarlesturinn

ELDRI FRÉTTIR

Reglur Bókasafnsins:

Til að eignast bókasafnsskírteini verður þú að vera á 9. ári eða eldri, (þ.e. árið sem þú verður 9 ára.)

  • Skírteinið kostar ekkert, en ef þú glatar því þarftu að greiða kr. 300. fyrir nýtt!
  • Ef bókum er ekki skilað á réttum tíma verður að borga sekt sem er 20 krónur á dag umfram lánstíma á hverja bók.
  • Útlánstími bóka er almennt 30 dagar, en nýjar bækur má hafa í 10 daga.
  • Ef bækur skemmast eða glatast hjá þér, þarftu að borga þær, svo hægt sé að kaupa nýjar.

Hægt er að fá leigða fræðslu-leiki á tölvudiskum í 14 daga.     

Á vef Námsgagnastofnunar er mikið til af skemmtilegu kennsluefni.


 

Bókasafn Grindavíkur

Víkurbraut 62, efri hæð. 
Sími: 420-1108, fax: 420-1111. 
bokasafn@grindavik.is    

Afgreiðslutími:    
Mánudaga - föstudaga 
kl. 11:00 - 18:00. 

Bókaverðir hjálpa til að finna heimildir og útvega efni frá öðrum bókasöfnum ef þörf krefur, en þá gegn greiðslu póstkostnaðar. 

Þeir sem ekki eiga heimangengt geta fengið bækur sendar heim. 

Skipsáhafnir geta fengið bókakassa gegn
ábyrgð útgerðarfélags.

Starfsmenn:
Forstöðumaður: 
Margrét Rebekka Gísladóttir,
bókasafns- og upplýsingfr.
bokasafn@grindavik.is 

Bókavörður: 
Guðrún Erla Hákonardóttir,
bókasafnstæknir
gudrunh@grindavik.is

Bókavörður: 
Guðbjörg Ásgeirsdóttir,
bókasafnstæknir
gudbjorga@grindavik.is

Aðstoðarmaður: 
Dóra Dís Hjartardóttir