Jóna Kristín

Jóna Kristín Þorvaldsdóttir er bæjarfulltrúi fyrir Samfylkinguna síðan 2006 og bæjarstjóri Grindavíkur. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir
Netfang: jonak@grindavik.is
Sími 420 1100.

Bakgrunnur
Útskrifaðist frá Háskóla Íslands með embættispróf í guðfræði árið 1988. Vígðist farprestur austur í Norðfjarðarprestakall og þjónaði Neskaupstað og Mjóafirði til ársins 1990. Ráðin sóknarprestur í Grindavíkurprestakalli sumarið 1990, lét af þeim störfum 2007. Oddviti Samfylkingarinnar. Forseti bæjarstjórnar fyrstu tvö ár þessa kjörtímabilsins. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar frá 15. júlí 2008.

Fjölskylda
Eiginmaður, Björn Ingi Knútsson Höiriis, framkvæmdastjóri og alls eru börnin átta og barnabörnin tvö.

Áhugamál
Fjölskyldan, bæjarmálin, trúmál, góðar bækur, leiklist og aðrar listir.

 

 





Predikun 17. júní í Grindavíkurkirkju

Góðir Grindvíkingar, gleðilega þjóðhátíð.
Það er hátíð í dag við fögnum 65 ára Lýðveldi.
Á þessum 65 árum í þjóðarsögunni hefur margt breyst og gerst.
Sem þjóð höfum við kynnst ýmsu sjólagi, við höfum stigið hátt og einnig tekið miklar dýfur. Þó nú sé ólgusjór í efnahagslífi þjóðar og heims má ekki missa móð eða hætta að horfa fram á við. Þrátt fyrir allt á íslensk þjóð svo margt og hefur svo margt sem ekki verður tekið frá henni.

>> MEIRA
Bæjarfulltrúar

Meirihlutasamstarf í bæjarstjórn er með Framsókn og Sjálfstæðisflokki.