Með þessari áætlun lýsir bæjarstjórn Grindavíkur yfir vilja sínum til að jafna stöðu karla og kvenna með sértækum aðgerðum. Áætlunin tilgreinir ákvæði sem eiga að gera Grindavíkurbæ og stofnunum hans kleift að vinna að jafnrétti, jafnri stöðu karla og kvenna.
Áætlun þessi er ekki tæmandi, en hún tekur til helstu þátta svo sem starfsmannamála, skólamála og fræðslumála. Það starf að jafna stöðu kynjanna er viðameira en svo að það rúmist allt innan þessarar áætlunar. Það skal þó vera markmið okkar að flétta það starf inn í daglega starfsemi bæjarins og líf bæjarbúa.
1. Ráðningar
Jafnréttissjónarmið verði metin til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið við stöðuveitingar þegar ráða á í stjórnunarstörf innan bæjarins, (sbr. 13. gr. laga nr. 28/1991).
Við ákvörðun launa og fríðinda skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað, (sbr. 4. gr. laga nr. 28/1991).
2. Auglýsingar
Í auglýsingum skulu störf ókyngreind og þess gætt að hafa bæði kynin í huga við gerð auglýsinga (sbr. 4. gr. laga nr. 28/1991).
3. Námskeið
Fræðsla um jafnréttismál og leiðir til að vinna að jafnri stöðu kynjanna er nauðsynlegt til að auka þekkingu á séreinkennum kynjanna, mismunun og bæta samskipti kynjanna, í því skyni skal:
3-1. halda jafnréttisnámskeið fyrir stjórnendur og yfirmenn Grindavíkurbæjar.
3-2. bjóða uppá sérstök námskeið um sveitarstjórnarmál og störf í nefndum og ráðum fyrir bæði kynin, í uppnhafi hvers kjörtímabkils.
4. Vinnutími
Komið verði á sveigjanlegum vinnutíma innan stofnana og fyrirtækja Grindavíkurbæjar þar sem það er mögulegt, það síðan kynnt og auglýst. Þannig skal fjölskyldufólki auðveldað að samræma fjölskylduábyrgð og starf.
5. Dagvistir og skóli
Þær stofnanir bæjarins sem gegna uppeldis- og fræðsluhlutverki eru geysilega mikilvægar í mótun barna okkar. Því ber okkur að gæta þess að þar séu jafnréttissjónarmið höfð að leiðarljósi og að þau geti mætt þörfum fjölskyldna og foreldra til þess að samræma starf og fjölskylduábyrgð.
Til þess að nálgast þessi markmið skal stefna að eftirfarandi í samráði við skólanefnd, skólaskrifstofu, forráðamenn skóla og leikskóla, félög foreldra og nemenda.
5-1. Haldin verði jafnréttisnámskeið með starfsfólki leikskóla í þeim tilgangi að jafnréttissjónarmiða verði ætíð gætt í starfseminni.
5-2. Komið verði til móts við mismunandi þarfir fjölskyldna með sveigjanlegri opnunartíma leikskóla.
5-3. Reynt verði að jafna hlutfall kynja í starfsliði innan leikskóla.
5-4. Gert verði átak í því að kynna nám í hefðbundnum "karlagreinum" fyrir stelpur, hefðbundnum "karlagreinum fyrir stráka.
5-5. Jafnréttisráð vill í samstarfi við kennara og nemendur skólanna taka höndum saman um framgang jafnréttismála.
5-6. Haldin verði jafnréttisnámskeið fyrir kennara.
5-7. Reynt verði að jafna hlutfall kynjanna meðal kennara í grunnskóla sveitarfélagsins.
6. Nefndir og ráð
Jafnréttisnefnd beinir því til stjórnmálaflokkanna að hlutur karla og kvenna í nefndum og ráðum á vegum bæjarins verði sem jafnastur.
7. Verkefni jafnréttisnefndar
Jafnréttisnefnd vinni að framgangi áætlunarinnar og annarra verkefna sem bæjarstjórn felur henni. Jafnréttisnefnd skal afla sér upplýsinga um stöðu kynjanna á árdögum áætlunarinnar svo henni verði kleift að meta árangur hennar við endurskoðun hennar. Áætlunina skal endurskoða eftir þrjú ár.
Samþykkt í bæjarstjórn Grindavíkur 14. maí 2003.
Ólafur Örn Ólafsson
bæjarstjóri
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
