Íţróttamannvirki

Forstöðumaður íþróttamannvirkja Grindavíkurbæjar er Hermann Guðmundsson.
Sími 426 8244 og 660 7304.
Netfang: hermann@grindavik.is

Símaskrá:
Íþróttahús  426 8244
Sundlaug 426 7555
Forstöðumaður íþróttamannvirkja 660 7304
Fax  426-7244
Netfang:  ithrottir@grindavik.is

Starfsfólk:
Hermann Guðmundsson, forstöðum. 426 8451
Ester Garðarsdóttir 
Fanný Laustsen 
Ólína Þorsteinsdóttir
Páll Axel Vilbergsson 
Sigríður Ágústsdóttir
Sigurgeir Sigurgeirsson 
Snorri Kristinsson  
Þórhildur Einarsdóttir
Þórkatla Albertsdóttir 

Á myndinni er Hermann Guðmundsson ásamt Ólafi Rafnssyni, forseta ÍSÍ, og Þórólfi Árnasyni, forstjóra Skýrr, en starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar náði frábærum árangri í Lífshlaupinu í febrúar 2009 og varð í 2. sæti í sínum flokki. Myndin var tekin við verðlaunaafhendinguna.

Sundlaug GrindavíkurSundlaug Grindavíkur
Austurvegi 1
Sími 426 7555

Sundlaug Grindavíkur var tekin í notkun 9. apríl 1994. Hún er 25 x 12,5 m útisundlaug.
Tveir heitir pottar, annar með nuddi.
Barnalaug með svepp.
Rennibraut.
Ljósabekkur (sem sunddeildin á og rekur).
Líkamsræktarsalur (rekinn af Actic heilsurækt)

Sumaropnunartími:
Mánudag – föstudags kl. 07:00 – 20:00
Helgar kl. 10:00 – 17:00

Vetraropnunartími:
Mánudag – föstudags kl. 07:00 – 20:00
Helgar kl. 10:00 – 15:00

Verðskrá:
Stakt gjald barna 200
Stakt gjald fullorðinna 400
10 miða kort, börn 1.500
10 miða kort, fullorðnir 3.150
30 miða kort börn
30 miða kort fullorðnir 7.500
3 mánaða kort fullorðnir hætta
Árskort, fullorðnir 20.000
Árskort hjóna 0
Árskort fjölskyldu 38.000
Árskort barna 6 - 18 ára 5.250
Börn 0- 5 frítt
Við kaup á 20-99 árskortum. Verð 16.000 kr/stk
Við kaup á 100-199 árskortum. Verð 12.000 kr/stk
Við kaup á 200 eða fleiri árskortum. Verð 8.500 kr/stk

Verð í ljósabekk:
Stakur tími 650 kr. 10 tíma kort 4.200 kr.
10 tímar kort (mán.) 5.250 kr.
Frítt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega í sund og gufu.

Verð í líkamsrækt og sund:
Sjá hér. 

Íþróttahús Grindavíkur
Austurvegi 1
Sími 426 8244

Íþróttahúsið var tekið í notkun 20. október 1985.
Stærri salurinn er 900 m2 að stærð.
Minni salurinn er 140 m2.
Fjórir búningsklefar eru í húsinu auk annars rýmis.
Hópar og fyrirtæki geta leigt einstaka tíma fyrir íþróttaiðkun.

Í íþróttahúsinu fer fram leikfimikennsla grunnskólans, æfingar hinna ýmsu deilda innan UMFG og heimaleikir körfuboltaliða UMFG.

 

 

Knattspyrnuvellir Grindavíkurbæjar:
Sími 426 8244.
Húsvörður/vallarstjóri er Bergsteinn Ólafsson, sími 868 8394.

Grassvæðið er alls um 42.400 m2 að stærð, vetraræfingasvæðið á rollutúni er c.a. 20.000 m2.
Nýr og glæsilegur aðalleikvangur með 1500 manna stúku var tekinn í notkun 17. júní 2001 en völlurinn er 72x105 m. Gamli aðalvöllurinn er notaður sem æfinga- og keppnissvæði og er 100x100 m. Þess utan er æfingasvæði sem er 105x105 m.

Fjórir búningsklefar eru við aðalvöllinn og félagsheimili knattspyrnudeildar.

 

 

Hópið - Fjölnota íþróttahús Grindavíkur
við Austurveg
Sími 426 8605.

Húsvörður/vallarstjóri:
Bergsteinn Ólafsson
Sími 868 8394.

Fjölnota knattspyrnuhús var tekið í notkun haustið 2008 en vígt formlega 28. mars 2009.
Knattspyrnuhúsið er 50 x 70 metra stálgrindarhús með nýjustu kynslóð gervigrass og 60 metra hlaupabraut og er bylting fyrir knattspyrnuiðkendur í Grindavík.