
Hópsskóli er staðsettur í nýjasta íbúðahverfi Grindavíkur, við Suðurhóp. Norðan og austan megin við skólann eru einbýlishús og parhús, vestan megin er fjölbýli en sunnan megin er íþróttahverfið í Grindavík sem notað verður til kennslu þegar þannig ber undir.
Skammt frá skólanum er fjölnota íþróttahús, Hópið, sem var tekið í notkun haustið 2009. Þetta er glæsilegt hús sem aðallega er notað til knattspyrnuiðkunar en nýtist einnig í aðrar íþróttagreinar, fyrir göngur fyrir almenning og að sjálfsögðu sem skólamannvirki.
Sundlaug Grindavíkur er skammt frá skólanum en þar fer skólasundið fram. Hún er 25 x 12,5 m útisundlaug. Þarna eru tveir heitir pottar, annar með nuddi, barnalaug með svepp, rennibraut og fleira. Æfingaaðstaða fyrir sunddeildina er í kjallara sem nýtist einnig júdódeildinni. Þar fer fram sundkennsla fyrir nemendur Hópsskól.
Íþróttahúsið er þar skammt frá en það var tekið í notkun 20. október 1985. Stærri salurinn er 900 m2 að stærð. en minni salurinn er 140 m2. Fjórir búningsklefar eru í húsinu auk annars rýmis. Íþróttakennsla Hópsskóla fer þarna fram.
Skammt frá Hópsskóla eru einnig þrír knattspyrnu- og æfingavellir í fullri stærð, stúka sem tekur 1500 manns er fyrir framan aðalleikvanginn. Við völlinn er einnig félagsheimili knattspyrnudeildarinnar.
Umhverfið í Hópsskóla verður að teljast barnvænlegt og nýtist starfsfólki og nemendum skólans t.d. við útikennslu og útiveru.



