Í janúar 2010 verður fyrsta þróunarverkefni Hópsskóla sett af stað:
• Slökun og skynörvun til að bæta námsárangur og tilfinningalega líðan nemenda
Markmið
Að nemendur nái að upplifa slökun og nota hana sem aðferð til að leysa úr ágreiningi, bæta námsárangur og tilfinningalegalíðan. Aðnemendur upplifi mikilvægi skynfæranna. Sjón, heyrn, lykt, snerting.
Áfangar:
Koma upp litlum húsum eða hellum í slökunarherbergjunum
Koma upp boltabaði.
Koma upp ljósaþráðum, ljóskösturum og ljósarörum.
Koma upp ilmolíusafni.
Koma upp hljómtækjum og geisladiskum með slökunartónlist.
Skipta tímum niður á nemendur og festa í stundaskrá þeirra.
Viðmið um árangur:
Nemendur nái fljótt ró þegar upp koma árekstrar.
Nemendur nái betri einbeitingu við verkefnavinnu.
Nemendur fari úr skólanum í góðu jafnvægi.
Tímamörk:
Byrjað verður á verkefninu um miðjan janúar 2010. Úttekt á verkefninu um miðjanmars og síðan í lok skálaársins.
Mat á framvindu:
Samstarfsaðilar gara bekkjarathuganir og ræða sameiginlega reynslu. Tveir bekkjarfundir frá janúar til júní 2010 þar sem nemendum gefst kostur á að ræða um skynörvunar og slökunartímana.
Mat á árangri:
Kennarar skila stuttri skýrslu og kynna hana á almennum starfsmannafundi.



