
Í teymisvinnu vinna starfsmenn saman við að halda utan um alla þætti sem snerta velferð og nám nemenda. Nokkur teymi vinna í skólanum út þetta skólaár og samanstanda þau af umsjónarkennurum, sérkennara, stuðningsfulltrúum og skólastjóra. Teymin halda annars vegar utan um nemendahópa innan árgangs og hins vegar utan um smiðjuhópa og þemavinnu þar sem nemendum er blandað saman úr árgöngum.



