Starfshćttir

Í Hópsskóla vinna allir saman, hlið við hlið að sama markmiðinu sem er góður skóli og í góðum skóla líður öllum vel. Til að vel takist til þarf kjark, óttaleysi við breytingar, fagmennsku, einlægni, samvinnu, skýra og sterka framtíðarsýn og vilja til að læra með og af hvert öðru.

Starf Hópsskóla miðast að því að öllum nemendum skólans skuli sköpuð skilyrði til að þroska með sér andlegan, líkamlegan og félagslegan styrk. Mikil áhersla er lögð á vellíðan, gleði og að nemendur finni til öryggis, njóti hæfileika sinna og bernsku í öllu starfi skólans. Í skólanum er nemendalýðræði virt með því að hafa nemendur með í ákvarðanatöku í skólastarfinu með tilliti til aldurs þeirra og þroska hverju sinni. Einelti og annað ofbeldi er látið víkja fyrir kærleika, samhygð, fordómaleysi, umburðarlyndi og hæfni til að setja sig í spor annarra. Úr Hópsskóla munu útskrifast kjarkmiklir og heiðarlegir einstaklingar sem fengið hafa tækifæri til að þroska með sér sjálfstæði í vinnubrögðum, skapandi og gagnrýna hugsun, ásamt leiðum til að leita eftir gleði, umburðarlyndi, samvinnu, slökun og jafnrétti.

Hópsskóli
Suðurhópi 2
240 Grindavík
Sími 420 1180
hopsskoli@grindavik.is

Tilkynningar

>> Tilkynna skal forföll nemenda í síma 420 1180 eða með því að smella hér.

Torg fyrir innakstur
Athygli er vakin á því að þegar börnum er ekið í Hópsskóla er sérstakt snúningstorg fyrir bílana. Þar er ætlast til að börnunum sé hleypt úr og svo geta bílstjórar haldið áfram leið sinni. Ef allir fara eftir þessu ætti umferðin við skólann að ganga vel á morgnana.

Umsjónarmaður Hópsskóla
Umsjónarmaður Hópsskóla er Sveinbjörn Jónsson. Hann er það sem í daglegu tali kallast húsvörður! Sími Sveinbjarnar er 660 7327.