Skólasamfélagiđ

Skólasamfélagið samanstendur af nemendum, starfsfólki skólans og foreldrum/forráðamönnum. Hóparnir setja sér markmið um að vinna saman að mótun skólasamfélagsins. Menntun og velferð nemenda er sameiginlegt verkefni heimila og skóla.

Handtak heimilis og Hópsskóla skal ætið vera hlýtt og traust. Önnur höndin er tákn heimilis og hin er hönd Hópsskóla. Það eru þessar hendur sem hornsteininn leggja að andlegum, líkamlegum og félagslegum þroska barnanna okkar. Gæfa og gengi barnsins þíns, barnsins míns, barnsins okkar getur oltið á því, hvort þessar hendur bera gæfu til þess að vinna saman. Það þurfa þær og eiga að gera.

Hópsskóli
Suðurhópi 2
240 Grindavík
Sími 420 1180
hopsskoli@grindavik.is

Tilkynningar

>> Tilkynna skal forföll nemenda í síma 420 1180 eða með því að smella hér.

Torg fyrir innakstur
Athygli er vakin á því að þegar börnum er ekið í Hópsskóla er sérstakt snúningstorg fyrir bílana. Þar er ætlast til að börnunum sé hleypt úr og svo geta bílstjórar haldið áfram leið sinni. Ef allir fara eftir þessu ætti umferðin við skólann að ganga vel á morgnana.

Umsjónarmaður Hópsskóla
Umsjónarmaður Hópsskóla er Sveinbjörn Jónsson. Hann er það sem í daglegu tali kallast húsvörður! Sími Sveinbjarnar er 660 7327.