Um skólann okkar

Velkomin á vef Hópsskóla, nýs grunnskóla við Suðurhóp 2 í Grindavík. Skólinn var vígður 10. desember 2009 og tók til starfa í ársbyrjun 2010. Á vefnum er að finna upplýsingar um skólastarfið sem nýtast vonandi vel og þá fyrst og fremst foreldrum/forráðamönnum og nemendum skólans.

Aðrir lesendur síðunnar finna hér vonandi eitthvað gagnlegt. Það er von mín að í Hópsskóla muni ríkja vinátta, traust, gleði, kjarkur, heiðarleiki og vilji til að gera skólastarfið fallegt og gott. Merki skólans táknar tvær manneskjur sem tengjast, haldast í hendur eða með bolta á milli sín í leik. Græni liturinn í merkinu táknar þroska, gróanda og vöxt. Hann er litur jafnvægis, vonar og gleði. Appelsínuguli liturinn í merkinu táknar kraft, gleði, hamingju og félagslyndi.

Kær kveðja,
Maggý Hrönn Hermannsdóttir
skólastjóri

Hópsskóli
Suðurhópi 2
240 Grindavík
Sími 420 1180
hopsskoli@grindavik.is

Tilkynningar

>> Tilkynna skal forföll nemenda í síma 420 1180 eða með því að smella hér.

Torg fyrir innakstur
Athygli er vakin á því að þegar börnum er ekið í Hópsskóla er sérstakt snúningstorg fyrir bílana. Þar er ætlast til að börnunum sé hleypt úr og svo geta bílstjórar haldið áfram leið sinni. Ef allir fara eftir þessu ætti umferðin við skólann að ganga vel á morgnana.

Umsjónarmaður Hópsskóla
Umsjónarmaður Hópsskóla er Sveinbjörn Jónsson. Hann er það sem í daglegu tali kallast húsvörður! Sími Sveinbjarnar er 660 7327.