Skóli fyrir alla

Hópsskóli er skóli fyrir alla eða skóli án aðgreiningar. Þarfir nemenda eru í fyrirrúmi og lögð er áhersla á að uppfylla þær af kostgæfni. Nemendur skólans þurfa, og eiga að njóta umhyggju, hlýju, skilnings og kærleika frá öllum starfsmönnum skólans. Leitað er eftir sterkum hliðum nemenda og byggt ofan á þær, einnig er lagt mikið upp úr skapandi hugsun og að nám fari fram í gegnum leik. Allir nemendur skólans fá vinnuaðstöðu og námsefni miðað við aldur þeirra og þroska og þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum ásamt því að vinna með öðrum.

Hópsskóli
Suðurhópi 2
240 Grindavík
Sími 420 1180
hopsskoli@grindavik.is

Tilkynningar

>> Tilkynna skal forföll nemenda í síma 420 1180 eða með því að smella hér.

Torg fyrir innakstur
Athygli er vakin á því að þegar börnum er ekið í Hópsskóla er sérstakt snúningstorg fyrir bílana. Þar er ætlast til að börnunum sé hleypt úr og svo geta bílstjórar haldið áfram leið sinni. Ef allir fara eftir þessu ætti umferðin við skólann að ganga vel á morgnana.

Umsjónarmaður Hópsskóla
Umsjónarmaður Hópsskóla er Sveinbjörn Jónsson. Hann er það sem í daglegu tali kallast húsvörður! Sími Sveinbjarnar er 660 7327.