
Skólasel Hópsskóla:
Sími 420 1180
Farsími 660 7321
Starfsfólk í Skólaseli:
Berglind Anna Magnúsdóttir
Margrét Erlingsdóttir
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Í Skólaseli er boðið upp á skóladagvist fyrir nemendur í 1. - 4. bekk. Þar gefst foreldrum tækifæri til að lengja veru barna sinna í skólanum eftir að kennslu lýkur til 17.15.
Lokað er vetrarfríi, í jóla- og páskafríi einnig á árshátíðardegi og vorgleði. Á öðrum skóladögum, þar sem vikið er út frá venjulegu skipulagi s.s. á Öskudegi og jólagleði opnar Skólasel um leið og dagskrá líkur. Foreldrar eru beðnir að láta vita ef þeir hyggjast ekki senda börn sín. Ekki er greitt fyrir starfsdag eða vetrafrídag ef hann er ekki nýttur.
Markmið starfsins er að koma til móts við þarfir samfélagsins, foreldra og atvinnulífs með því að skapa börnunum öruggan og notalegan samastað að skóla loknum. Dagurinn skiptist í frjálsan leik úti og inni og skipulagt starf svo sem föndur, leiki ofl. Lögð er áhersla á friðsamleg og jákvæð samskipti barna og fullorðinna og að dvölin geti verið lærdómsrík og skemmtileg.
Verðið er 210 krónur á klukkutímann og er greitt fyrir lágmarksvistun 20 klst. á mánuði.
Ef foreldrar ætla að hætta að nota Skólasel eða skrá inn ný börn þarf að láta vita með fyrirvara. Umsóknaeyðublöð liggja frammi á skrifstofu skólans og í Skólaseli. Einnig er þau að finna á heimasíðu skólans. Greitt er fyrir gæsluna eftirá og sér Bæjarskrifstofa Grindavíkur um innheimtuna. Ef greiðsla vegna barns hefur ekki borist hálfum mánuði eftir gjalddaga getur það ekki haldið áfram í Skólaseli.
Af gefnu tilefni eru foreldrar beðnir um að senda með börnunum upplýsingar eða hringja ef heimferðatími breytist og láta vita ef barnið mætir ekki í Skólasel. Einnig er mjög mikilvægt að hafa símanúmer bæði heimasíma, vinnusíma og GSM þannig að alltaf sé unnt að ná til foreldra ef nauðsyn krefur.
Þau börn sem eru í vistun lengur en til 15:00 þurfa að hafa meðferðis nesti. Boðið er upp á ávaxtabita kl. 14:00.



