Sérkennsla

Í núgildandi lögum um grunnskóla (2008, 2. grein) segir að grunnskólinn skuli leitast við að haga störfum sínum í sem fyllsta samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins. Í 17. grein laganna segir að nemendur sem eiga erfitt með nám sökum sértækra námsörðugleika, tilfinningalegra eða félagslegra örðugleika og/eða fötlunar sbr. 2. gr. laga um málefni fatlaðra, nemendur með leshömlun, langveikir nemendur og aðrir nemendur með heilsutengdar sérþarfir eiga rétt á sérstökum stuðningi í námi í samræmi við metnar sérþarfir. Í Hópsskóla er litið svo á að öll kennsla skuli vera sérkennsla og reynt til hins ítrasta að tryggja nemendum námsaðstæður og námsefni sem henta getu, þroska og áhuga hvers og eins.

Hópsskóli
Suðurhópi 2
240 Grindavík
Sími 420 1180
hopsskoli@grindavik.is

Tilkynningar

>> Tilkynna skal forföll nemenda í síma 420 1180 eða með því að smella hér.

Torg fyrir innakstur
Athygli er vakin á því að þegar börnum er ekið í Hópsskóla er sérstakt snúningstorg fyrir bílana. Þar er ætlast til að börnunum sé hleypt úr og svo geta bílstjórar haldið áfram leið sinni. Ef allir fara eftir þessu ætti umferðin við skólann að ganga vel á morgnana.

Umsjónarmaður Hópsskóla
Umsjónarmaður Hópsskóla er Sveinbjörn Jónsson. Hann er það sem í daglegu tali kallast húsvörður! Sími Sveinbjarnar er 660 7327.