Samkennsla

Gert er ráð fyrir að kennsla geti farið fram í formi samkennslu árganga. Kennarar koma sér saman um að skipta nemendum upp í hópa óháð aldri. Þannig er hægt að hafa vinnuna fjölbreyttari og bjóða nemendum upp á mismunandi verkefni þar sem hver og einn lærir að vinna sjálfstætt og hjálpast að.

Hópsskóli
Suðurhópi 2
240 Grindavík
Sími 420 1180
hopsskoli@grindavik.is

Tilkynningar

>> Tilkynna skal forföll nemenda í síma 420 1180 eða með því að smella hér.

Torg fyrir innakstur
Athygli er vakin á því að þegar börnum er ekið í Hópsskóla er sérstakt snúningstorg fyrir bílana. Þar er ætlast til að börnunum sé hleypt úr og svo geta bílstjórar haldið áfram leið sinni. Ef allir fara eftir þessu ætti umferðin við skólann að ganga vel á morgnana.

Umsjónarmaður Hópsskóla
Umsjónarmaður Hópsskóla er Sveinbjörn Jónsson. Hann er það sem í daglegu tali kallast húsvörður! Sími Sveinbjarnar er 660 7327.