
Í Hópsskóla eru 8 skólastofur, frá 60 upp í 66 fermetra. Tvær stofur liggja saman með fellivegg sín á milli. Þá er 7,4 fermetra hvíldarrými að milli hverrja tveggja stofa. Þá er 63,7 fermetra stofa fyrir heilsdagsskóla, þ.e. þá nemendur sem eru allan daginn.
Kennarastofan er 78,5 ferm. en þar er kaffiaðstaða og vinnustofa. Í húsinu er einnig mjög góð aðstaða fyrir tónlistarkennslu, kennslusalur fyrir list- og verkgreinar og glæsilegt 42,5 fermetra eldhús en þar er hugmyndin að elda skólamat fyrir báða skólana í Grindavík.
Jafnframt er 164 metra glæsilegur samkomusalur fyrir skólann og 26,7 fermetra svið en þetta nýtist fyrir samkomur, uppákomur og sem matsalur í skólanum. Einnig er skrifstofuaðstaða fyrir skólastjóra, afgreiðsla ritara o.fl.




