
Merki Hópsskóla var teiknað af Gunnari Júlíussyni, grafískum hönnuði, og lágu ýmsar vangaveltur að baki því. Litir Hópsskóla eru appelsínugulur og grænn.
Appelsínuguli liturinn er krafmikill litur og táknar gleði, hamingju og félagslyndi.
Græni liturinn er litur þroska, gróanda og vaxtar. Hann er litur jafnvægis, vonar og gleði.
Merkið táknar tvær manneskjur sem tengjast, haldast í hendur eða eru með bolta á milli sín í leik.
Litir merkja að við getum verið ólík, með mismunandi bakgrunn en vinnum saman.



