Foreldrasamstarf

Í grunnskólalögum nr. 91/2008 segir: "starfsmönnum skóla er skylt að efla samstarf skóla
og heimila, m.a. með því að miðla fræðslu um skólamál til foreldra og veita upplýsingar um
starfið í skólanum".

Í Hópsskóla er borin virðing fyrir skoðunum og ábendingum foreldra/forráðamanna varðandi nám og kennslu nemenda. Með góðu samstarfi skólans við fjölskyldur nemenda eru meiri líkur á að nemendum okkar gangi vel í skólanum og líði þar sem best. Mikilvægt er að gagnkvæmt traust og skilningur ríki á milli heimilis og skóla og samstaða sé um markmið og leiðir í námi og kennslu. Foreldrar eru boðnir sérstaklega velkomnir í skólann og hvattir til að koma skoðunum sínum og hugmyndum á framfæri. Ömmur og afar, langömmur og langafar eru hvattir til að koma í Hópsskóla til að miðla okkur af reynslu sinni og segja okkur sögur.

Hópsskóli
Suðurhópi 2
240 Grindavík
Sími 420 1180
hopsskoli@grindavik.is

Tilkynningar

>> Tilkynna skal forföll nemenda í síma 420 1180 eða með því að smella hér.

Torg fyrir innakstur
Athygli er vakin á því að þegar börnum er ekið í Hópsskóla er sérstakt snúningstorg fyrir bílana. Þar er ætlast til að börnunum sé hleypt úr og svo geta bílstjórar haldið áfram leið sinni. Ef allir fara eftir þessu ætti umferðin við skólann að ganga vel á morgnana.

Umsjónarmaður Hópsskóla
Umsjónarmaður Hópsskóla er Sveinbjörn Jónsson. Hann er það sem í daglegu tali kallast húsvörður! Sími Sveinbjarnar er 660 7327.