Áhugasviđ

Í Hópsskóla er virðing borin fyrir áhugasviði nemenda og þeim gefinn kostur á að vinna með það. Nemendur fá tíma til að vinna einir eða í litlum hópum í eina til tvær kennslustundir á viku, allt eftir áhuga hvers og eins. Með þessu móti gefst nemendum tækifæri til að vinna með sterkar hliðar sínar, njóta sköpunargleðinnar og hugmyndaflugsins sem fleytir mörgum yfir erfiða hjalla.

Nemendur ákveða hvað þeir ætla að gera og koma með hugmyndir að útfærslu að verkefnum. Þeir kynna síðan afraksturinn annað hvort fyrir samnemendum, kennurum, gestum eða fara með kynninguna t.d. á Heilsuleikskólann Krók eða Leikskólann Laut.

Hópsskóli
Suðurhópi 2
240 Grindavík
Sími 420 1180
hopsskoli@grindavik.is

Tilkynningar

>> Tilkynna skal forföll nemenda í síma 420 1180 eða með því að smella hér.

Torg fyrir innakstur
Athygli er vakin á því að þegar börnum er ekið í Hópsskóla er sérstakt snúningstorg fyrir bílana. Þar er ætlast til að börnunum sé hleypt úr og svo geta bílstjórar haldið áfram leið sinni. Ef allir fara eftir þessu ætti umferðin við skólann að ganga vel á morgnana.

Umsjónarmaður Hópsskóla
Umsjónarmaður Hópsskóla er Sveinbjörn Jónsson. Hann er það sem í daglegu tali kallast húsvörður! Sími Sveinbjarnar er 660 7327.